Margar steypireyðar koma á Skjálfandaflóa á hverju ári eins og fjölmargir gestir hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík vita. Á árlegri hvalaráðstefnu Hvalasafnsins á Húsavík og Rannsóknarseturs Háskóla Íslands sem haldin var fyrr í sumar komu fram upplýsingar um fjölda steypireyða sem sérfræðingar hafa talið á Skjálfanda síðustu ár. Sérstakt rannsóknarverkefni um talningar á steypireyðum er í gangi á Húsavík þar sem starfsfólk og nemendur við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Húsavík vinna. Verkefnið felst í greiningu á ljósmyndum af steypireyðum á Skjálfanda. Að sögn dr. Marianne Rasmussen hjá Rannsóknarsetrinu og stjórnanda verkefnisins hafa 172 mismunandi steypireyðar heimsótt Skjálfanda einu sinni eða oftar á árabilinu 2001-2015. Talið er að steypireyðarstofninn í Norður-Atlantshafi sé um 1.000 dýr. Það þýðir að um 17% steypireyðarstofnsins hefur lagt leið sína á Skjálfanda. Vegna ofveiði á síðustu öld er tegundin í útrýmingarhættu og erfitt að áætla hvernig stofninum vegnar. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Marianne um rannsóknir á hvölum á Skjálfanda.
Kvikmyndahátíðin Ocean Films Húsavík fer vel af stað
Kvikmyndahátíðin Ocean Films Húsavík er hálfnuð og hefur aldrei verið jafn stór og vegamikil og nú. Hátíðin er haldin í fjórða sinn