Abercrombie & Kent styðja við Hvalasafnið

Bandaríska ferðaskrifstofan Abercrombie & Kent afhenti Hvalasafninu í dag styrk úr góðgerðasjóði sínum að fjárhæð 7.000 dollara eða tæplega 1 milljón króna.  Þetta er fjórða árið í röð sem ferðaskrifstofan velur að styrkja safnið. Á síðasta ári var styrkurinn notaður til uppbyggingar á steypireyðargrindinni á safninu og í ár verður styrkurinn notaður til áframhaldandi vinnu við steypireyðarsýninguna. Við afhendingu styrksins í Hvalasafninu í dag voru um 170 gestir mættir á vegum ferðaskrifstofunnar.  Gestirnir komu til Húsavíkur með skemmtiferðaskipinu Le Boreal.  Hvalasafnið þakkar Abercrobie & Kent stuðninginn og þann velvilja sem safninu er með þessu sýndur.

Check 1

 

Facebook
Twitter
LinkedIn

More to explorer

Friðun hnúfubaks

Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS, áður LÍÚ), Ólafur H. Marteinsson, sagði við Morgunblaðið 14. mars að „Hvað loðnustofninn varðar þá liggur

Lokað er fyrir athugasemdir.